fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Pressan

Ætlaði að eitra ís og láta myrða barnungan breskan prins

Kristján Kristjánsson
Fimmtudaginn 24. maí 2018 17:00

Georg prins. Mynd:Wikimedia Commons.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nú standa yfir réttarhöld í Bretlandi yfir 32 ára breskum karlmanni. Hann er ákærður fyrir hótanir og fyrir að hvetja til hryðjuverka. Maðurinn birti færslur á internetinu þar sem hann lagði meðal annars til að stuðningsmenn öfgasamtaka múslima myndu eitra ís í stórmörkuðum. Hann birti einnig ljósmynd af Georg prins, syni hertogahjónanna, Vilhjálms og Katrínar, og birti heimilisfang skólans sem Georg sækir ásamt skuggamynd af heilögum vígamanni. Georg er þriðji í erfðaröðinni að bresku krúnunni.

„Þeir konungbornu sleppa ekki.“

Skrifaði hann meðal annars.

Maðurinn hefur áður sagt að fólk eigi að berjast og fórna blóði sínu fyrir fólkið í heimalöndum sínum. Hann hefur einnig margoft hvatt fólk til hryðjuverka eins síns liðs. Maðurinn er þekktur fyrir að hafa aðstoðað fólk, sem vill fremja hryðjuverk, með því að ráðleggja því um sprengjugerð og smíði vopna. Hann styður einnig hryðjuverkasamtökin sem kenna sig við Íslamska ríkið eftir því sem segir í ákærunni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

„Hefurðu séð lík?“ – 14 ára stúlka myrti móður sína og bauð vinkonu heim til að sjá líkið

„Hefurðu séð lík?“ – 14 ára stúlka myrti móður sína og bauð vinkonu heim til að sjá líkið
Pressan
Í gær

Elon Musk sakar Ástrali um ritskoðun: „Hrokafullur milljarðamæringur,“ segir ráðherra

Elon Musk sakar Ástrali um ritskoðun: „Hrokafullur milljarðamæringur,“ segir ráðherra
Pressan
Fyrir 2 dögum

„Ósigrandi“ stúlknalið fór ósigrað í gegnum tímabilið í „strákadeildinni“

„Ósigrandi“ stúlknalið fór ósigrað í gegnum tímabilið í „strákadeildinni“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Airbnb-húsið frá helvíti – Móðir og fjögur börn í stórhættu

Airbnb-húsið frá helvíti – Móðir og fjögur börn í stórhættu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Gerði óhugnanlega uppgötvun heima hjá sér – Síðan hefur ráðgátan bara undið upp á sig

Gerði óhugnanlega uppgötvun heima hjá sér – Síðan hefur ráðgátan bara undið upp á sig
FréttirPressan
Fyrir 3 dögum

Dularfulla skáldsagan sem spáði fyrir um Titanic-slysið – Var höfundurinn geðveikur eða skyggn?

Dularfulla skáldsagan sem spáði fyrir um Titanic-slysið – Var höfundurinn geðveikur eða skyggn?