Á þriðja tímanum í nótt var tilkynnt um eignaspjöll og hugsanlega líkamsárás í Garðabæ. Einn var handtekinn á vettvangi og vistaður í fangageymslu vegna rannsóknar málsins.
Einn ökumaður var handtekinn í gærkvöldi en sá er grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna.
Einn ökumaður var handtekinn í nótt en sá er grunaður um ölvun við akstur.
Að öðru leyti var nóttin róleg hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.