Aftonbladet birti myndbandsupptöku á heimasíðu sinni en á henni má heyra um 20 skotum hleypt af. Blaðið hefur eftir talsmanni lögreglunnar að tilkynnt hafi verið um skothríð og sprengingu.
Mikill fjöldi lögreglumanna hefur verið á vettvangi í nótt. Hinir særðu voru fluttir á sjúkrahús. Lögreglan segir að málið sé rannsakað sem morðtilraun.