fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Pressan

Menn með járnkylfur reyndu að komast inn í hús í austurborginni

Kristján Kristjánsson
Föstudaginn 25. maí 2018 06:35

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Um klukkan hálf eitt í nótt var lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu tilkynnt að menn með járnkylfur væru að reyna að komast inn í hús í austurborginni. Tilkynnandi sagði að mennirnir hefðu ekki beitt kylfunum. Mennirnir voru farnir af vettvangi þegar lögreglan kom þangað. Skömmu síðar var einn maður, sem tengist málinu, handtekinn eftir að lögreglumenn sáu hann henda meintum fíkniefnum frá sér. Hann var látinn laus að yfirheyrslu lokinni.

Um klukkan hálf eitt var maður handtekinn  í miðborginni. Hann hafði verið til vandræða á skemmtistað og hafði reynt að slá dyraverði. Maðurinn róaðist þegar lögreglan kom á vettvang og var hann settur í lögreglubifreið og átti að aka honum heim. En þegar ekið var af stað æstist maðurinn mikið og varð hinn versti í viðmóti og veittist að lögreglumanni. Hann endaði því í fangageymslu.

Um klukkan hálf eitt var bifreið ekið á ljósastaur í Hafnarfirði. Fimm voru í bifreiðinni. Tveir voru fluttir á slysadeild en ekki er vitað hversu alvarleg meiðsli þeirra voru.

Tveir ökumenn voru handteknir undir morgun en þeir eru báðir grunaðir um ölvun við akstur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

„Hefurðu séð lík?“ – 14 ára stúlka myrti móður sína og bauð vinkonu heim til að sjá líkið

„Hefurðu séð lík?“ – 14 ára stúlka myrti móður sína og bauð vinkonu heim til að sjá líkið
Pressan
Í gær

Elon Musk sakar Ástrali um ritskoðun: „Hrokafullur milljarðamæringur,“ segir ráðherra

Elon Musk sakar Ástrali um ritskoðun: „Hrokafullur milljarðamæringur,“ segir ráðherra
Pressan
Í gær

„Ósigrandi“ stúlknalið fór ósigrað í gegnum tímabilið í „strákadeildinni“

„Ósigrandi“ stúlknalið fór ósigrað í gegnum tímabilið í „strákadeildinni“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Airbnb-húsið frá helvíti – Móðir og fjögur börn í stórhættu

Airbnb-húsið frá helvíti – Móðir og fjögur börn í stórhættu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Gerði óhugnanlega uppgötvun heima hjá sér – Síðan hefur ráðgátan bara undið upp á sig

Gerði óhugnanlega uppgötvun heima hjá sér – Síðan hefur ráðgátan bara undið upp á sig
FréttirPressan
Fyrir 3 dögum

Dularfulla skáldsagan sem spáði fyrir um Titanic-slysið – Var höfundurinn geðveikur eða skyggn?

Dularfulla skáldsagan sem spáði fyrir um Titanic-slysið – Var höfundurinn geðveikur eða skyggn?