Yfirvöld hafa gripið til neyðarráðstafana í Kerala-ríki á Índlandi vegna sjúkdómsins en einkenni hans eru ekki ósvipuð og flensueinkenni en þau leiða til kvalafullrar bólgu á heila, heilabólgu. Dánartíðni smitaðra er um 70 prósent. Margir missa meðvitund og enda í dái. Ekkert bóluefni er til við veirunni sem veldur sjúkdómnum.
Sky segir að sérfræðingar hafi verið sendir til Kerala til að reyna að hindra útbreiðslu veirunnar. Hún er á lista WHO yfir þá sjúkdóma/veirur sem talið er líklegast að geti orðið að alheimsfaraldri. Á þeim lista eru einnig veirur á borð við ebólu og zika.
Frá 1998 er vitað að nipah hafi orðið 260 manns að bana í Malasíu, Bangladess og Indlandi. Veiran hefur einnig greinst í Singapore. Þar fannst hún í svínum en nú berst hún með ávaxtaleðurblökum. Margar slíkar fundust dauðar í brunni fjölskyldu sem hefur misst fjóra af völdum veirunnar.
200 manns eru sagðir liggja á sjúkrahúsum nú vegna smits. Fylgst er með heilsu 26 til viðbótar og þrír eru á gjörgæslu.