Á vettvangi voru nokkrir menn til viðbótar og voru þeir allir yfirheyrðir af lögreglunni á vettvangi og síðan sleppt. Enginn hefur verið handtekinn vegna málsins.
Aftonbladet segist hafa heimildir fyrir að maðurinn hafi verið skotinn tveimur skotum. Vitni segjast hafa heyrt allt að sex skotum hleypt af.
Þann 19. maí fannst maður um þrítugt látinn á nánast sama stað. Hann hafði verið skotinn til bana í bíl sínum.