Fólki er enn að fjölga og það eykur að sjálfsögðu álagið á auðlindir jarðarinnar. En þrátt fyrir að fólki sé enn að fjölga þá færumst við nær þeim tímapunkti þar sem fólki hættir að fjölga og jafnvægi næst. Þá verða 9 til 11 milljarðar manna á jörðinni. Þetta kemur fram á vef Videnskab.dk. Ástæðan er sögð vera hærri lífaldur og um leið eignast konur færri börn en áður.
Samhliða hækkandi tekjum fólks munu færri, bæði börn og fullorðnir, látast af völdum sjúkdóma á borð við malaríu og niðurgangs. Þörfum sífellt fleiri verður mætt hvað varðar mat og vant og fleiri flytja til bæja og borga. Konum, sem mennta sig, mun fjölga og þar með aukast líkurnar á að þær fái vinnu. Um leið aukast möguleikar þeirra á að fá aðgang að getnaðarvörnum.
Reynslan sýnir að þegar vel gengur með að útvega fólki vatn og mat og mennta konur þá eignast þær færri börn en þær gera við verri aðstæður.