fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Pressan

Ætlaði á klósettið – Endaði nakinn úti á götu

Kristján Kristjánsson
Mánudaginn 18. júní 2018 19:30

Myndin tengist fréttinni ekki beint.Mynd: Wikimedia Commons

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Karlmaður um fimmtugt lenti í miklum hremmingum þegar hann ætlaði á klósettið. Snemma á sunnudagsmorguninn bárust lögreglunni í Osló margar tilkynningar um nakinn mann sem sprangaði um á Sagene og fylgdi sögunni að hann virtist ansi ringlaður.

Laganna verðir brugðust að sjálfsögðu skjótt við og fóru á vettvang. Þeir fundu manninn fljótt og ræddu við hann. Kom þá í ljós að hann hafði ætlað á klósettið í fjölbýlishúsi þar sem hann hafði verið en fyrir mistök hafði hann hafnað úti á götu. Lögreglan skýrði frá þessu á Twitter.

TV2 hefur eftir talsmanni lögreglunnar að maðurinn hafi ekki getað gefið neina frekari skýringu á þessum mistökum.

Lögreglumenn gátu aðstoðað manninn við að komast aftur inn í íbúðina. Talsmaður lögreglunnar sagði að maðurinn hafi ekki verið undir áhrifum vímuefna. Hann hafi verið ringlaður sem væri ekki furða þegar maður lendir úti á götu í stað þess að komast á klósettið.

Kona var í íbúðinni og tók hún á móti óheppna manninum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 3 dögum

9 ára stúlka lést eftir astmakast – Foreldrarnir létu renna í bað í stað þess að hringja á neyðarlínuna

9 ára stúlka lést eftir astmakast – Foreldrarnir létu renna í bað í stað þess að hringja á neyðarlínuna
Pressan
Fyrir 3 dögum

Hún kom að eiginmanninum með annarri konu – Síðan gerði hún svolítið hræðilegt

Hún kom að eiginmanninum með annarri konu – Síðan gerði hún svolítið hræðilegt
Pressan
Fyrir 4 dögum

Blaðamaðurinn Terry Anderson látinn – Gekk í gegnum margra ára martröð

Blaðamaðurinn Terry Anderson látinn – Gekk í gegnum margra ára martröð
Pressan
Fyrir 4 dögum

Taldi sig vera að hitta 7 og 11 ára stelpur á hóteli – Skotinn til bana af lögreglu

Taldi sig vera að hitta 7 og 11 ára stelpur á hóteli – Skotinn til bana af lögreglu
Pressan
Fyrir 4 dögum

47 ár frá upphafi tveggja tímamótageimferða

47 ár frá upphafi tveggja tímamótageimferða
Pressan
Fyrir 4 dögum

Gríðarstórt eldfjall á Mars var fyrir „allra augum“ og gæti geymt ummerki um líf

Gríðarstórt eldfjall á Mars var fyrir „allra augum“ og gæti geymt ummerki um líf