Fjórir voru úrskurðaðir látnir á vettvangi en sá fimmti við komuna á sjúkrahús. Nokkrir til viðbótar slösuðust alvarlega. Bílstjórinn var handtekinn en hann er bandarískur ríkisborgari að sögn lögreglunnar.
Slysið mun væntanlega ýta enn frekar undir heitar umræður um straum ólöglegra innflytjenda yfir landamærin frá Mexíkó. Þau mál hafa verið mikið í umræðunni undanfarna daga vegna nýrra vinnubragða innflytjendayfirvalda sem eru nú farin að taka börn af foreldrum sínum, þegar fjölskyldur koma yfir landamærin, og vista í sérstökum búðum fyrir börn á meðan foreldrunum er haldið í fangelsi.
Undanfarnar sex vikur hafa að minnsta kosti 2.000 börn verið aðskilin frá foreldrum sínum. Þetta staðfestu bandarísk yfirvöld á föstudaginn.