Piltarnir neita allir sök í málunum. Þrír þeirra eru grunaðir um að hafa hópnauðgað annarri 14 ára stúlkunni einu sinni og þrír þeirra eru grunaðir um að hafa hópnauðgað hinni þrisvar sinnum. Lögregluna grunar að fleiri barnungar stúlkur hafi orðið fyrir barðinu á piltunum. Henrik Gunst, lögreglufulltrúi, staðfesti við Ekstra Bladet að piltarnir hafi líklega nauðgað tveimur 13 og 15 ára stúlkum til viðbótar og vildi ekki útiloka að fórnarlömbin væru fleiri.
Þrír piltanna hafa setið í gæsluvarðhaldi síðan 1. júní. Í einu málanna eru þeir grunaðir um að hafa þvingað 14 ára stúlku inn í herbergi í fjölbýlishúsi í Kokkedal og afklætt hana. Einn þeirra nauðgaði henni síðan á meðan annar hélt henni og sá þriðji tók ofbeldið upp á myndband. Þetta gerðist um miðjan apríl. Piltarnir vildu ekki tjá sig fyrir dómi þegar gæsluvarðhaldskrafa yfir þeim var tekin fyrir.
Þetta mál kom lögreglunni á sporið hvað varðar hina 14 ára stúlkuna. Einn þeirra fyrrnefndu er grunaður um að hafa tekið þátt í tveimur hópnauðgunum á henni. Á fimmtudaginn voru þrír piltar til viðbótar handteknir vegna þessa máls.
Fyrsta ofbeldisverkið gagnvart henni átti sér stað í október á síðasta ári þegar fimm piltar ruddust inn í íbúð í Kokkedal og þvinguðu stúlkuna inn í herbergi þar sem þrír þeirra neyddu stúlkuna til munnmaka á meðan hinir tveir tóku ofbeldið upp á myndband. Í nóvember var stúlkan aftur beitt ofbeldi þegar fjórir piltar afklæddu hana og héldu höfði hennar föstu á meðan þeir neyddu hana til munnmaka. Síðan nauðguðu tveir þeirra henni. Daginn eftir beittu fjórir piltar þessa sömu stúlku aftur ofbeldi í sólbaðsstofu í verslunarmiðstöð. Hún var neydd til munnmaka og tveir þeirra nauðguðu henni síðan. Tveir til viðbótar reyndu að nauðga henni en hún náði að verjast þeim. Tveir piltar til viðbótar voru viðstaddir ofbeldið og tóku upp á myndband. Ekki er vitað hverjir þeir eru.
Rannsókn lögreglunnar er á frumstigi en eins og fyrr segir óttast hún að fórnarlömbin séu mun fleiri.