Landamæraeftirlitið hefur tekið ýmsar byggingar í notkun til að geyma börn í en þau eru tekin frá foreldrum sínum sem koma ólöglega yfir landamærin. Einnig eru þarna börn sem komu ein síns liðs til Bandaríkjanna. Fréttamönnum var leyft að heimsækja eina svona geymslu í suðurhluta Texas í kjölfar gagnrýni og mótmæla gegn stefnu Donald Trump í málaflokknum.
Í geymslunni, sem var áður vörugeymsla, var búið að koma upp sérstökum hólfum fyrir börn sem voru ein síns liðs, önnur voru fyrir fullorðna og enn önnur fyrir foreldra með börn.
Sky segir að samkvæmt frétt Associated Press þá séu ljós kveikt allan sólarhringinn og búrin, sem fólkið er látið vera í, opnist út í sameiginlegt rými þar sem færanleg klósett séu. Samkvæmt upplýsingum starfsfólks í byggingunni eru þar um 200 börn án foreldra sinna.
Engin leikföng eða bækur eru á staðnum og á myndum sem landamæraeftirlitið birti sjást börnin sitja vafin inn í teppi eins og fórnarlömb náttúruhamfara fá oft til afnota. Fréttamenn fengu ekki að taka viðtöl né myndir í heimsókninni.
Trump brást við gagnrýninni í færslu á Twitter og reyndi að réttlæta vinnuaðferðir landamæraeftirlitsins. Hann sagði að verstu glæpamenn heims væru að nota börn til að komast til Bandaríkjanna. Hann sagði að glæpum færi fjölgandi í Þýskalandi vegna mikils fjölda innflytjenda. Þá skammaði hann demókrata fyrir að vilja ekki styðja hann í að breyta innflytjendalögum.
Ekki er útilokað að Trump verði að bakka í þessu máli og gefa út forsetatilskipun um breytt vinnubrögð landamæraeftirlitsins vegna mikillar gagnrýni. Bæði demókratar og repúblikanar eru andsnúnir þessum vinnuaðferðum og auk þess hafa allar fyrrum forsetafrúr Bandaríkjanna, sem eru á lífi, gagnrýnt þetta og segja þetta ómanneskjulega meðferð á fólki. Einnig hefur eiginkona Trump, Melania Trump, sagt að sér þyki erfitt að horfa upp á þetta.
Michelle Brane, forstjóri Women‘s Refugee Commission, sagðist hafa rætt við 16 ára barn sem er haldið í einni af þessum geymslum. Viðkomandi sagðist hafa þurft að kenna öðrum ungmennum að skipta um bleiur á litlum börnum þar sem þau þyrftu að hugsa um þau.
Peter Welch, þingmaður repúblikana, heimsótti eina svona geymslu og sagði í kjölfarið á Twitter að hann hefði séð búr full af börnum sem hafi setið á járnbekkjum og starað þögul út í loftið.
„Þetta er ekkert annað en fangelsi.“
Sagði hann.
Tæplega 2.000 börn hafa verið aðskilin frá foreldrum sínum síðan stjórn Trump tilkynnti um breytta stefnu í þessum málum.