Þetta er eitt af þeim undarlegu morðvopnum sem fjallað er um í ítarlegri úttekt Danska ríkisútvarpsins á morðum í Danmörku frá 1992 til 2016 eða 1.338 morð.
Í öðru máli sló 47 ára kona til karlmanns með brotnum öskubakka. Hann skarst inn í lunga mannsins og gerði gat á það og lést hann skömmu síðar. Þetta er eina morðið síðan 1992 þar sem öskubakki hefur verið notaður sem morðvopn.
Meðal annarra morðvopna sem komu við sögu einu sinni á þessum árum voru garðklippur og spjót nautabana. Í einu málanna var kona læst inni í frystiklefa þar sem hún kafnaði.
1992 lentu tveir vinir í slagsmálum. Annar náði hálstaki á hinum með gervihandlegg sínum og kyrkti vininn. Þetta er eina morðið þar sem gervihandleggur kom við sögu.
Lásbogi kom við sögu í einu morði en þá skaut maður æskuvin sinn með lásboga og stakk hann síðan margoft með hníf. Morðinginn flýtti sér síðan heim til Þýskalands. Hann var handtekinn nokkrum mánuðum síðar og framseldur til Danmerkur. Morðið var tilkomið vegna skuldar æskuvinarins við hann.