fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Pressan

Eldsvoði og fjöldi ökumanna í annarlegu ástandi

Kristján Kristjánsson
Miðvikudaginn 20. júní 2018 06:06

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á tólfta tímanum í gærkvöldi var tilkynnt um eld í gámi við Laugaveg 178, nærri bílageymslu. Slökkvilið slökkti eldinn sem var einskorðaður við gáminn. Á sjötta tímanum í gær var maður í annarlegu ástandi handtekinn í Austurstræti en hann var sagður hafa verið að veitast að fólki. Hann var vistaður í fangageymslu.

Skömmu eftir miðnætti var akstur ökumanns stöðvaður á Geirsgötu. Bifreiðin sem hann ók reyndist vera með röng skráningarmerki og voru þau klippt af.

Um klukkan 20.00 datt kona í tröppum í Smáralind þegar hún var að koma úr kvikmyndahúsi. Hún var flutt á sjúkrahús en hún var með áverka í andliti og var líklegast handleggsbrotin.

Fimm ökumenn voru handteknir í gærkvöldi og nótt en þeir eru allir grunaður um að hafa verið undir áhrifum fíkniefna. Einn þeirra var einnig kærður fyrir of hraðan akstur, annar fyrir að hafa ekið sviptur ökuréttindum (ítrekað brot) og sá þriðji fyrir að vera ekki með ökuskírteini meðferðis. Farþegi í bifreið hans er grunaður um vörslu fíkniefna.

Tveir ökumenn voru stöðvaðir í akstri í gær þar sem þeir höfðu áður verið sviptir ökuréttindum. Annar þeirra ók ótryggðri bifreið og voru skráningarmerkin tekin af henni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Móðir ákærð – Hótaði barnsföður sínum að birta klámfengið efni

Móðir ákærð – Hótaði barnsföður sínum að birta klámfengið efni
Pressan
Fyrir 2 dögum

Norður-Kórea er betur undirbúin undir stríð en nokkru sinni áður

Norður-Kórea er betur undirbúin undir stríð en nokkru sinni áður
Pressan
Fyrir 3 dögum

Fundu bát sem var fullur af rotnandi líkum

Fundu bát sem var fullur af rotnandi líkum
Pressan
Fyrir 3 dögum

Kannabis er orðið að milljarðaiðnaði í Bandaríkjunum – Hvaða áhrif hefur efnið á heilsu fólks?

Kannabis er orðið að milljarðaiðnaði í Bandaríkjunum – Hvaða áhrif hefur efnið á heilsu fólks?
Pressan
Fyrir 3 dögum

Kynlífspartý, fíkniefni, Viagra og morð – Kaþólska kirkjan tengist vafasömum málum

Kynlífspartý, fíkniefni, Viagra og morð – Kaþólska kirkjan tengist vafasömum málum
Pressan
Fyrir 3 dögum

Lögreglukonan sem réðst ein til atlögu gegn stungumanninum í Sydney – „Ég var bara að vinna mína vinnu“ – Nýjar upplýsingar um morðingjann vekja óhug

Lögreglukonan sem réðst ein til atlögu gegn stungumanninum í Sydney – „Ég var bara að vinna mína vinnu“ – Nýjar upplýsingar um morðingjann vekja óhug