fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
Pressan

Flutti frá New York til Malmö – „Það er verra hér í Malmö“

Kristján Kristjánsson
Miðvikudaginn 20. júní 2018 06:26

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Íbúar í Malmö í Svíþjóð hafa búið við það ófremdarástand undanfarin misseri að skotum hefur verið hleypt af á götum úti og eru því orðnir ýmsu vanir. En morðin á þremur ungum mönnum á mánudagskvöldið hafa samt sem áður haft mikil áhrif á borgarbúa enda nánast um aftöku að ræða. Maður, sem flutti frá New York til Malmö fyrir skömmu, segir að ástandið í Malmö sé miklu verra en í New York.

Martin Schain var vitni að skotárásinni í Drottninggatan. Hann er nýfluttur til Malmö ásamt fjölskyldu sinni frá New York.

„Ég fann aldrei til óöryggis þar. Það er verra hér í Malmö. Við göngum jú með barnavagninn þar sem þetta gerðist.“

Sagði hann í samtali við Sydsvenskan.

Schain og fjölskylda hans búa beint á móti internetkaffihúsinu þar sem mennirnir voru skotnir. Þrír létust og þrír særðust.

Schain var að þvo upp þegar hann heyrði skothvellina.

„Ég hélt fyrst að þetta hefði verið stillans sem hefði hrunið. Maður trúir ekki að verið sé að nota sjálfvirk vopn.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

„Hefurðu séð lík?“ – 14 ára stúlka myrti móður sína og bauð vinkonu heim til að sjá líkið

„Hefurðu séð lík?“ – 14 ára stúlka myrti móður sína og bauð vinkonu heim til að sjá líkið
Pressan
Í gær

Elon Musk sakar Ástrali um ritskoðun: „Hrokafullur milljarðamæringur,“ segir ráðherra

Elon Musk sakar Ástrali um ritskoðun: „Hrokafullur milljarðamæringur,“ segir ráðherra
Pressan
Í gær

„Ósigrandi“ stúlknalið fór ósigrað í gegnum tímabilið í „strákadeildinni“

„Ósigrandi“ stúlknalið fór ósigrað í gegnum tímabilið í „strákadeildinni“
Pressan
Í gær

Airbnb-húsið frá helvíti – Móðir og fjögur börn í stórhættu

Airbnb-húsið frá helvíti – Móðir og fjögur börn í stórhættu
Pressan
Fyrir 2 dögum

Gerði óhugnanlega uppgötvun heima hjá sér – Síðan hefur ráðgátan bara undið upp á sig

Gerði óhugnanlega uppgötvun heima hjá sér – Síðan hefur ráðgátan bara undið upp á sig
FréttirPressan
Fyrir 3 dögum

Dularfulla skáldsagan sem spáði fyrir um Titanic-slysið – Var höfundurinn geðveikur eða skyggn?

Dularfulla skáldsagan sem spáði fyrir um Titanic-slysið – Var höfundurinn geðveikur eða skyggn?