„Tími til kominn að reka Sessions og stöðva Mueller-rannsóknina.“
Skrifaði hann og staðhæfði að skýrsla Michael Horowitz, sem er einhverskonar innri eftirlitsmaður dómsmálaráðuneytisins, frá því í síðustu viku hafi sýnt fram á sakleysi forsetans.
Ekki er ljóst hvort Parscale skrifaði þetta að beiðni Trump en hann hefur einmitt sett álíka staðhæfingar fram. Það gerði Trump þrátt fyrir að Horowitz hafi á mánudaginn sagt þingnefnd að skýrsla hans snerist um rannsókn FBI á tölvupóstmálum Hillary Clinton en tæki ekki á rannsókninni á Rússlandstengslunum.
Ekki er langt síðan Trump sagði að hann vildi óska að hann hefði ekki skipað Sessions sem dómsmálaráðherra. Trump hefur oft gagnrýnt Sessions fyrir að hafa lýst sig vanhæfan í tengslum við Rússlandsrannsóknina en það hefur í för með sér að Trump hefur minni stjórn á atburðarásinni.