Blaðamenn VG voru í Malmö í gær til að kynna sér stöðu mála. Þeir ræddu meðal annars við tvo menn um tvítugt sem voru við morðvettvanginn og virtu blómahafið fyrir sér. Mennirnir sögðust vera æskuvinir hinna myrtu og hefðu alist upp í sama hverfi og þeir, Nydala. Þeir lýstu hinum látnu sem „góðum strákum“ sem hefðu „verið á röngum stað á röngum tíma“.
„Nú verður ástandið verra í Malmö. Það verður miklu, miklu verra.“
Sagði annar þeirra. Þegar hann var spurður hvort einhverjir muni hefna sín játti hann því.
„Munuð þið hefna ykkar?“
Spurði blaðamaður og svarið var:
„Já, það er hugsanlegt. Við sjáum hvað setur.“
Mennirnir, sem eru fæddir og uppaldir í Malmö en eiga foreldra frá Balkanskaganum og Miðausturlöndum, sögðu auðvelt að komast yfir skotvopn í Malmö.
„Þeir sem vilja geta keypt byssu á einni klukkustund. Það er ekkert mál.“
Gróf skipulögð glæpastarfsemi
Grunur leikur á að morðin á mánudagskvöldið tengist grófri skipulagðri glæpastarfsemi. Lögreglan hefur engan grunaðan í málinu að svo stöddu. Hinir látnu voru síbrotamenn og höfðu meðal annars fengið dóma fyrir fíkniefnamál, líkamsárásir, gróft rán og morð að sögn Stefan Sintéus, lögreglustjóra í Malmö.
Hann sagði að of snemmt væri að fullyrða nokkuð um ástæðu morðanna en lögreglan ynni út frá þeirri kenningu að hætta sé á hefndaraðgerðum.
Í úttekt sem Aftonbladet gerði á skotárásum í þremur stærstu borgum Svíþjóðar, Stokkhólmi, Gautaborg og Malmö, kemur fram að flest morð, sem hafa verið framin í átökum glæpagengja í Stokkhólmi og Gautaborg, hafa verið framin í fátækari hverfum í útjaðri borganna.
En það er ekki svo í Malmö því þar hafa flest morðanna verið framin á götu úti í miðborginni eða í jaðri miðborgarinnar.