Blaðamenn BT hittu föðurinn við heimili fjölskyldunnar í Kokkedal. Lögreglan segir að á undanförnum mánuðum hafi mörgum barnungum stúlkum verið nauðgað á þessu svæði. Sex piltar á aldrinum 15 til 16 ára sitja í gæsluvarðhaldi vegna tveggja aðskilinna mála þar sem tveimur 14 ára stúlkum var nauðgað en DV skýrði frá málinu nýlega. BT og Ekstra Bladet segja að piltarnir séu allir af ættum innflytjenda.
„Þetta var ekki nauðgun. Ef maður er með stelpu heima hjá henni er það ekki nauðgun eins og ef maður tekur í stelpu utan húss og neyðir hana niður. Hún lýgur og ásakanirnar eru ýktar.“
Sagði maðurinn við blaðamenn BT án þess að hika.
Annar sonur mannsins sagði að orðrómurinn í hverfinu væri að stúlkurnar hefðu kært piltana fyrir nauðgun í þeirri von að þær gætu fengið skaðabætur. Um leið sýndi hann blaðamönnum mynd af bróður sínum og öðru fórnarlambinu þar sem þau halda utan um hvort annað. Myndin var tekin tveimur dögum eftir hina meintu nauðgun að sögn bróðursins.