Trébátur sökk við strendur Líbíu á þriðjudaginn. Talið er að um 100 manns hafi verið um borð. Fimm fundust á lífi og var bjargað af líbísku strandgæslunni. Sama dag sökk gúmmíbátur með 130 manns innanborðs. 60 var bjargað af sjómönnum frá Líbíu og þeir fluttir aftur til Líbíu.
Á miðvikudaginn hvarf bátur með um 50 manns innanborðs og er talið að allir hafi drukknað.
Helmingi færri hafa reynt að komast til Evrópu yfir Miðjarðarhaf í ár miðað við sama tíma í fyrr að sögn Sameinuðu þjóðanna. Frá ársbyrjun og fram í miðjan júní komu um 40.000 manns til Evrópu yfir Miðjarðarhaf en í fyrra voru það um 80.000 manns. Þá höfðu um 2.000 manns drukknað.