Á mánudaginn voru þrír skotnir til bana og þrír særðir þegar þeir komu út af internetkaffihúsi í miðborg Malmö. Sexmenningarnir voru og eru allir meðlimir í skipulögðum glæpasamtökum. Lögreglan taldi strax í upphafi ástæðu til að óttast að hefndaraðgerðir og það virðist hafa verið raunin þremur dögum síðar. Þá var 24 ára karlmaður skotinn til bana í Lindängen. Aftonbladet segist hafa heimildir fyrir að fjórir menn séu grunaðir um morðið og að einn þeirra sé einn þeirra sem særðist í skotárásinni við internetkaffihúsið á mánudeginum. Aðfaranótt laugardags var 19 ára maður skotinn í bakið en hann slapp ómeiddur þar sem hann var í skotheldu vesti. Hann lifði einnig af skotárás fyrir um ári síðan en þá var hann einnig í skotheldu vesti.
Lögreglan í borginni fær nú liðsauka frá öðrum lögregluliðum í suðurhluta Svíþjóðar og frá Nationella operativa avdelningen (NOA) sem er sérstök löggæslustofnun sem styður við lögregluna í landinu og rannsakar meðal annars skipulagða glæpastarfsemi.
Lögreglan í Malmö mun nú fá rannsóknarlögreglumenn til liðs við sig en það gerir henni kleift að sinna hefðbundnum verkefnum úti á meðal borgaranna. Talsmaður lögreglunnar bendir á að staðarþekking lögreglumanna sé mikilvæg og því gott að hafa lögreglumenn frá Malmö við störf á götum úti.