Um klukkan 1 í nótt var maður handtekinn í Knarrarvogi eftir að tilkynnt var að hann væri að brjóta rúður í bifreið. Maðurinn var með muni úr bifreiðinni á sér þegar hann var handtekinn. Hann var vistaður í fangageymslu.
Lögreglan hafði afskipti af 12 manns í Laugardal í gærkvöldi vegna vörslu fíkniefna. Einnig komu upp nokkur líkamsárásarmál í dalnum.
Tveir ökumenn voru handteknir í nótt grunaðir um ölvun við akstur og þrír voru handteknir grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna.
Tilkynnt var um þak að fjúka við Rauðagerði á fjórða tímanum í nótt og klukkan 4 var tilkynnt um lausar þakplötur á húsi við Mjóddian.
Brotist var inn í bifreiðaverkstæði í Höfðahverfi í nótt og skemmdir unnar.
Um klukkan 2 í nótt var ráðist á íbúa við Strandgötu í Hafnarfirði en þangað höfðu menn komið og ráðist á hann með hnefahöggum. Lögreglan telur sig vita hverjir voru að verki.