Klukkan 18.20 í gær var lögreglunni tilkynnt um þjófnað úr fataskápum gesta í Vesturbæjarlauginni. Þar hafði buxum með belti verið stolið sem og ýmsum munum og verðmætum. Skömmu síðar var maður handtekinn grunaður um þjófnaðinn. Það varð honum að falli að hann var búinn að klæða sig í fyrrnefndar buxur.
Auk þess var hann með ýmsa muni, sem hafði verið stolið, í fórum sínum. Hann var vistaður í fangageymslu vegna rannsóknar málsins.