fbpx
Þriðjudagur 16.apríl 2024
Pressan

Bíll Sögu Norén seldur á uppboði – Endapunktur Brúarinnar

Kristján Kristjánsson
Þriðjudaginn 17. júlí 2018 17:00

Saga Norén.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í febrúar var síðasti þáttur sjónvarpsþáttaraðarinnar Brúin sýndur í sjónvarpi og lauk þar með sigurgöngu þessarar mögnuðu spennuþáttaraðar. Ógleymanlegur leikur Sofia Helin í þáttunum mun væntanlega sitja lengi í minni margra en túlkun hennar á lögreglukonunni Sögu Norén var stórkostleg.

Nú má kannski segja að endahnútur hafi verið rekinn á Brúna því nýlega var Porsche bifreiðin, sem Saga ók í þáttunum, seld á uppboði. Bifreiðin var stór hluti af persónu Sögu en einnig stór hluti af sænskri og danskri sjónvarpssögu.

Bifreiðin var seld fyrir 1,6 milljónir sænskra króna en það svarar til um 19 milljóna íslenskra króna. Söluverðið rennur allt til samtakanna WaterAid sem vinna að því að bæta aðgengi fólks í fátækustu ríkjum heims að hreinu vatni, salernum og almennu hreinlæti.

Í fréttatilkynningu er haft eftir Sofa Helin að það sé frábært að bílinn hafi komið að svo miklum notum eftir að Brúin endaði göngu sína.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Hvað verður um heilann úr OJ Simpson?

Hvað verður um heilann úr OJ Simpson?
Pressan
Í gær

Ráðagóðir menn björguðu sér með aðstoð pálmablaða

Ráðagóðir menn björguðu sér með aðstoð pálmablaða
Pressan
Fyrir 2 dögum

Í þessu landi seljast fleiri fullorðinsbleiur en barnableiur

Í þessu landi seljast fleiri fullorðinsbleiur en barnableiur
Pressan
Fyrir 2 dögum

Ný rannsókn bendir til hugsanlegrar lækningar á HIV

Ný rannsókn bendir til hugsanlegrar lækningar á HIV
Pressan
Fyrir 3 dögum

Búrhvalir nota risastórar kúkasprengjur til að bjarga sér frá árásum háhyrninga

Búrhvalir nota risastórar kúkasprengjur til að bjarga sér frá árásum háhyrninga
Pressan
Fyrir 3 dögum

Gleymd gögn frá Appologeimferðunum varpa ljósi á áður óþekkta atburði á tunglinu

Gleymd gögn frá Appologeimferðunum varpa ljósi á áður óþekkta atburði á tunglinu
Pressan
Fyrir 4 dögum

Hafði setið í fangelsi í 21 ár – Sá endursýndan sjónvarpsþátt fyrir tilviljun og gat sannað sakleysi sitt

Hafði setið í fangelsi í 21 ár – Sá endursýndan sjónvarpsþátt fyrir tilviljun og gat sannað sakleysi sitt
Pressan
Fyrir 4 dögum

Ofbeldisverk eru mikið vandamál í frönskum skólum

Ofbeldisverk eru mikið vandamál í frönskum skólum