Sex létust af völdum hita í gær og mörg hundruð voru fluttir á sjúkrahús. Sex ára skólabarn er meðal þeirra látnu en það leið yfir barnið eftir skólaferð og það lést síðan.
Í Kumagaya, sem er norðan við Tókýó, er spáð 39 stiga hita í dag. 35 stiga hiti mældist á 200 veðurathugunarstöðum á sunnudaginn en svo mikill hiti þykir mjög hár. Í síðustu viku létust 12 manns af völdum hita og tæplega 10.000 voru fluttir á sjúkrahús að sögn yfirvalda. Veðurfræðingar gera ráð fyrir svipuðu veðri út mánuðinn.