fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Pressan

Barnsmorðingi stríddi lögreglunni í 30 ár með ömurlegum skilaboðum – Sá hlær best sem síðast hlær

Kristján Kristjánsson
Fimmtudaginn 19. júlí 2018 21:00

April Tinsley

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í apríl 1988 var April Tinsley, 8 ára, nauðgað og myrt í Indiana í Bandaríkjunum. Lögreglan komst ekkert áfram við rannsókn málsins. Það var ekki til að draga úr vonbrigðum lögreglumanna að morðingi April litlu gerði sér að leik að stríða þeim með ýmsum hætti. Þetta gerði að verkum að lögreglumennirnir urðu enn staðráðnari í að hafa uppi á honum og nú hefur það tekist, 30 árum síðar.

April var numin á brott á föstudaginn langa 1988 þegar hún var á gangi nærri heimili sínu í Fort Wayne. Henni var síðan nauðgað og myrt. Lík hennar fannst þremur dögum síðar á afskekktu svæði um 30 km frá heimili hennar.

Lögreglan hóf þegar umfangsmikla rannsókn en varð ekkert ágengt. Það var síðan tveimur árum síðar sem  morðinginn dularfulli sendi lögreglunni skilaboð þar sem hann játaði ódæðisverkið á sig, hann krotaði skilaboðin á hlöðudyr ekki fjarri staðnum þar sem líkið fannst:

„Ég myrti 8 ára April Marie Tisley ég mun myrða á nýjan leik. (sic)“

 

Skilaboðin á hlöðudyrunum.

14 árum síðar fundust fjögur álíka skilaboð á og við nokkur heimili í Fort Wayne, meðal annars á reiðhjólum ungra stúlkna.

„Hæ elskan ég hef fylgst með þér ég er sami aðilinn og rændi og Nauðgaði og myrti Aproil Tinsely þú ert næsta fórnarlamb mitt.(sic)“

Þessi skilaboð fundust í pokum með notuðum smokkum eða ljósmyndum af líkama morðingjans að sögn FBI. DNA, sem fannst í smokkunum, passaði við fyrri lífssýni sem hafði verið aflað við rannsókn morðsins á April.

En síðan hætti morðinginn að láta heyra frá sér. FBI kom að rannsókn málsins 2009 og sagði þá að það væri mjög líklegt að hægt væri að leysa það en samt liðu níu ár þar til morðinginn var handtekinn.

Það var ný tækni í erfðafræði og rannsóknum á DNA sem varð til þess að lögreglan hafði uppi á John D. Miller, 59 ára, á sunnudaginn og handtók grunaðan um að hafa nauðgað og myrt April litlu.

John D Miller

CNN hefur eftir móður April, Janet Tinsley, að hún sé orðlaus og trúi eiginlega ekki að þessi dagur hafi runnið upp, hún hafi óttast að morðinginn myndi aldrei nást.

Miller var úrskurðaður í gæsluvarðhald á mánudag og dómari hafnaði kröfu um að hann gæti losnað gegn greiðslu tryggingar.

Lögreglan náði að tengja Miller við morðið með því að nota DNA, sem fannst á líkinu, og skilaboðunum, sem hann sendi lögreglunni, til að leita í gagnagrunnum yfir erfðaefni. Þetta vísaði lögreglunni á tvo menn, Miller og bróðir hans, sem hugsanlega morðingja.

Lögreglumenn tóku notaða smokka úr sorptunnu Miller og fannst erfðaefni hans í þeim og passaði það við erfðefnið sem fannst á líki April. Lögreglan notaði því sömu aðferð við lausn þessa máls og við lausn á máli Golden State raðmorðingjans.

Miller játaði að hafa nauðgað og myrt April þegar hann var tekinn til yfirheyrslu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Lögreglan skýrir frá óhugnanlegum upplýsingum varðandi morð

Lögreglan skýrir frá óhugnanlegum upplýsingum varðandi morð
Pressan
Fyrir 2 dögum

Nokkur ráð til að losna undan símafíkninni

Nokkur ráð til að losna undan símafíkninni
Pressan
Fyrir 3 dögum

„Hefurðu séð lík?“ – 14 ára stúlka myrti móður sína og bauð vinkonu heim til að sjá líkið

„Hefurðu séð lík?“ – 14 ára stúlka myrti móður sína og bauð vinkonu heim til að sjá líkið
Pressan
Fyrir 3 dögum

Elon Musk sakar Ástrali um ritskoðun: „Hrokafullur milljarðamæringur,“ segir ráðherra

Elon Musk sakar Ástrali um ritskoðun: „Hrokafullur milljarðamæringur,“ segir ráðherra
Pressan
Fyrir 3 dögum

Hryllilegur dauðdagi Nicole Brown Simpson og Ronald Goldman

Hryllilegur dauðdagi Nicole Brown Simpson og Ronald Goldman
Pressan
Fyrir 4 dögum

Sérfræðingurinn segir að þetta eigir þú að borða á kvöldin ef þig langar að byrja daginn á góðum hægðum

Sérfræðingurinn segir að þetta eigir þú að borða á kvöldin ef þig langar að byrja daginn á góðum hægðum
Pressan
Fyrir 4 dögum

Gerði óhugnanlega uppgötvun heima hjá sér – Síðan hefur ráðgátan bara undið upp á sig

Gerði óhugnanlega uppgötvun heima hjá sér – Síðan hefur ráðgátan bara undið upp á sig
FréttirPressan
Fyrir 4 dögum

Dularfulla skáldsagan sem spáði fyrir um Titanic-slysið – Var höfundurinn geðveikur eða skyggn?

Dularfulla skáldsagan sem spáði fyrir um Titanic-slysið – Var höfundurinn geðveikur eða skyggn?