Úttektin náði til allra dóma í nauðgunarmálum, þar sem ráðist var á konur, á tímabilinu frá janúar 2016 til og með maí 2017. Þegar talað er um að ráðist hafi verið á konurnar er átt við að árásarmennirnir hafi ráðist skyndilega og óvænt á þær, þetta getur til dæmis verið þegar konur eru á gangi utanhúss og ráðist er á þær. Þetta er kallað „overfaldsvoldtægt“ á dönsku og er skilgreint á heimasíðu danska forvarnarráðsins. Þetta er í fyrsta sinn sem úttekt sem þessi er gerð.
Í málunum þekktust gerandi og fórnarlamb ekki neitt eða sáralítið en það er eitt þeirra atriða sem gera málin að „overfaldsvoldtægt“. Á tímabilinu sem var skoðað voru 12 dæmdir í slíkum málum. Þar af voru 10 innflytjendur eða afkomendur innflytjenda. Þeir eru meðal annars frá Makedóníu, Sómalíu, Búlgaríu og Írak. BT byggir þetta á upplýsingum sem koma fram í dómunum um upprunaland hinna dæmdu, ríkisborgararétt þeirra og hvort hægt sé að vísa þeim úr landi að afplánun lokinni.
Þrátt fyrir að Støjberg finnist þetta hryllileg niðurstaða sagðist hún ekki vera hissa. Hún sagði að lengi hafi verið vitað að glæpatíðni er mun hærri meðal innflytjenda en Dana. Hún sagði að þegar hún lítur yfir þessar grófu nauðganir þá sjáist greinileg merki þess að gerendurnir hafi ekki aðlagað sig að Danmörku og að viðhorf þeirra til kvenna séu mjög brengluð.
Niðurstöður BT sýna að margir hinna dæmdu komu til Danmerkur á undanförnum árum en tveir dvöldu ólöglega í landinu. Meðalaldur hinna dæmdu er 23 ár og um helmingur þeirra var undir áhrifum vímuefna þegar þeir frömdu brot sín. Allir 12 gerendurnir neituðu sök. Í flestum málanna tókst gerendunum ekki að koma fram vilja sínum þar sem konurnar börðust á móti eða þá að vegfarendur komu að og gripu inn í atburðarrásina.
BT leitaði til sérfræðinga um útskýringar á af hverju svo margir innflytjendur og afkomendur þeirra koma við sögu í þessum málum. Einn sérfræðinganna Christian Diesen, prófessor í lögum við Stokkhólmsháskóla, sagði að léleg aðlögun útlendinganna að samfélaginu eigi stóran hlut að máli. Þeim finnist þeir ekki vera hluti af samfélaginu og fyrirlíti samfélagið og annað fólk.
„Í Svíþjóð sjáum við sérstaklega hjá innflytjendastrákum, sem eru sakaðir um nauðgun, að þeir varpa sökinni oft á konuna – fórnarlambið – og kalla hana hóru og segja að hún hafi hegðað sér þannig að hún eigi sjálf sök á þessu. Hún var til í hitt og þetta í upphafi, hún var í g-streng og með rökuð kynfæri.“