Að minnsta kosti ellefu eru látnir eftir að hjólabát hvolfdi á Table Rock vatni í Missouri-ríki í Bandaríkjunum. Slæmt verður var á staðnum en auk þeirra 11 sem fórust liggja sjö slasaðir á sjúkrahúsi.
Atvikið átti sér stað um klukkan sjö í gærkvöldi að staðartíma en þrjátíu manns voru um borð í bátnum þegar óhappið varð. Kafarar vinna nú að því að bjarga farþegum sem fóru í sjóinn.
Lögregluvarðstjórinn Doug Rader segir aðstæður á staðnum erfiðar. „Þetta verður krefjandi nótt og morgundagur,“ sagði Doug í samtali við fjölmiðla í nótt.