Sænska lögreglan skaut mann á þrítugsaldri til bana í bænum Norrköping í nótt. Greint er frá þessu á vef sænska ríkisútvarpsins.
Málsatvik voru þau að maðurinn óskaði seint í nótt eftir aðstoð læknis. Læknir og tveir lögreglumenn voru þá sendir á vettvang en þegar þangað var komið hóf maðurinn skothríð. Að sögn varðstjóra lögreglunnar í Norrköping neyddust lögreglumennirnir tveir því til að verjast árásinni sem endaði þannig að maðurinn var skotinn til bana.
Rannsókn á atvikinu er nú þegar hafin að því er fram kemur í frétt sænska ríkistúrvarpsins.