Skömmu fyrir miðnætti var lögreglunni tilkynnt um erlendan ferðamann sem lét öllum illum látum í og við gistiheimili í miðborginni. Hann var allt annað en sáttur við afskipti lögreglu og veitti harða mótspyrnu við handtöku en laganna verðir yfirbuguðu hann samt sem áður og var maðurinn síðan vistaður í fangageymslu.
Fimm ökumenn voru handteknir í gærkvöldi og nótt grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna og/eða áfengis. Einn þeirra reyndist vera sviptur ökuréttindum.
Lögreglan sinnti nokkrum útköllum vegna hávaða og láta í heimahúsum í nótt.