Brúin sem um ræðir heitir, eða hét, Fiskebæk Bro og er sunnan við Toftlund á Jótlandi í Danmörku. í stað hennar var sett nútímaleg brú eða raunar rör og vegur síðan lagður yfir ána. Það var ekki fyrr en að þessum framkvæmdum loknum sem menn áttuðu sig á að gamla brúin var friðuð.
Í síðustu viku fengu bæjaryfirvöld í Tønder, Toftlund er hluti af Tønder-sveitarfélaginu, bréf frá Hallar- og Menningarstofnuninni þar sem þess er krafist að brúin verði byggð upp á nýjan leik. Því þarf að fjarlægja rörið og vegfyllinguna og reisa gömlu brúna úr því efni sem var haldið til haga úr henni. Ekki er enn vitað hvað þetta mun kosta.
Hluti af því efni sem var í gömlu brúnni er glatað en þar er aðallega um granítsteina að ræða. Það þarf því að finna samskonar steina.
Fyrir sveitarfélagið er það nokkur huggun harmi gegn að það má gera brúna breiðari en hún var upphaflega svo hún geti staðist þær kröfur sem eru gerðar til umferðar í dag.