Í máltíðinni, sem er afgreidd í kassa til að taka með heim, eru kartöfluflögur, pizzur, fiskur, pylsur, hamborgarar, laukhringir, kjúklingabitar og franskar kartöflur. Ekki nóg með það, þetta er allt djúpsteikt! Að auki fylgir tveggja lítra gosdrykkjarflaska með. Herlegheitin kosta 10 pund.
Framkvæmdastjóri veitingastaðarins segir að hann anni varla eftirspurn, svo vinsæll sé kassinn. Hann tekur fram að allur þessi matur sé ekki ætlaður einni manneskju, þetta dugi fyrir þrjá til fjóra.