Unglingur var skotinn nærri Sjödalsmenntaskólanum í Huddinge í Svíþjóð fyrir stundu. Fjölmennt lögreglulið er á vettvangi. Unglingurinn er sagður hafa verið skotinn mörgum skotum í fæturna og að 4-5 grímuklæddir menn hafi sést á vettvangi.
Aftonbladet skýrir frá þessu.