„Odyssey“ er stórbrotið myndband úr smiðju ljósmyndarans Henry Jun Wah Lee, sem búsettur er í Los Angeles í Bandaríkjunum. Myndbandið er að vísu þriggja ára gamalt en fegurð þess fellur aldrei úr gildi. Þarna sjá Íslendingar hversu fallegt landið þeirra er. Henry Jun fangaði á ferðalagi sínu stórbrotin myndskeið sem sína Ísland eins og þú hefur aldrei séð það áður.
Myndskeiðið er af ýmsum náttúruperlum, í 4K upplausn, og býður okkur einstakt tæki færi til að upplifa fegurð sem finnst ekki hvar sem er í heiminum. Myndbandið hefur þegar vakið athygli víða.
Best er að horfa á myndbandið í HD upplausn og láta það fylla út í skjáinn.