Flestir vita að það á ekki að borða snjó sem er orðinn gulur en mjallhvítur snjór hefur lengi freistað margra enda ískaldur og svalandi. En það er ekki gott fyrir líkamann að borða snjó, heldur ekki þann hvíta. Hann getur nefnilega verið stútfullur af mengun.
Það er stundum freistandi að taka lúkufylli af mjallhvítum snjó upp og borða til að svala þorstanum en það er betra að hugsa sig vel um áður en það er gert. Niðurstöður rannsóknar sem voru birtar í Environmental Science: Processes & Impacts, benda til að snjór beinlínis sogi mengaðar agnir í sig.
Vísindamennirnir blönduðu mismunandi gerðum snjóar saman við mengun og lofttegundir sem er yfirleitt að finna í útblæstri bíla. Með þessu gátu þeir mælt hversu mikið af lofttegundunum leystust upp í loftinu og hversu mikið snjórinn dró í sig. Tilraunin var gerð í sérstöku „snjórými“.
Niðurstöðurnar sýndu einnig að á aðeins einni klukkustund jókst mengunarmagnið í snjónum mjög mikið og eitraðar agnir festust í litlum ísögnum eða leystust upp í litlum pollum af vatni í snjónum. Þetta þýðir að snjór er mjög ganglegur til að draga loftmengun frá bílum í sig en að sama skapi óhollur fyrir fólk.