Bandaríkin hafa sett á efnahagsþvinganir gegn fjórum háttsettum einstaklingum innan ríkisstjórn Venesúela, þar með Cilia Flores sem er forsetafrú landsins, Delcy Rodriguez varaforseta landsins og Vladimir Padrino sem er varnarmálaráðherra landsins. Hluti af aðgerðunum er að meina öllum einstaklingum og fyrirtækjum í Bandaríkjunum að eiga viðskipti við þessa einstaklinga ásamt því að frysta allar eignir þeirra í Bandaríkjunum.
Að sögn Steven T. Mnuchin, fjármálaráðherra Bandaríkjanna, er markmiðið með þessum aðgerðum að setja þrýsting á þá einstaklinga sem hann telur bera ábyrgð á því hræðilega ástandi sem á sér stað í landinu. Undanfarin tvö ár hafa Bandaríkin beitt efnahagsþvingunum gegn landinu, þar með gegn Nicolás Maduro, forseta landsins, og ásaka hann um spillingu, eiturlyfjasmygl og mannréttindabrot.