Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hélt ræðu fyrr í dag fyrir allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna. Hann fór um víðan völl í ræðu sinni, meðal annars gagnrýndi hann Íran harðlega en hrósaði Norður Kóreu. Hann gagnrýndi einnig þýsk stjórnvöld fyrir að vera of háðir innflutningi á gasi frá Rússlandi og að Rússar gætu nýtt sér þetta til að kúga og ógna Þjóðverjum þar sem þeir yrðu háðir orku frá Rússlandi.
Atvik átti sér stað á meðan hann hélt ræðu sína þar sem fulltrúar allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna hlógu af forsetanum þegar hann hélt því fram að undir hans stjórn hafi nánast engin ríkisstjórn í sögu Bandaríkjanna gert jafn mikið fyrir landið. Eftir að þessi ummæli féllu byrjuðu fulltrúar allsherjarþingsins að hlæja og þegar Trump sagði að það væri satt jókst hláturinn.
Samkvæmt Washington Post hefur Donald Trump farið með rangfærslur í málflutningi sínum yfir 5.000 sinnum frá því hann tók við embætti forseta Bandaríkjanna.