Hann lét þessi orð falla í viðtali við CNBC eftir að hafa skýrt frá þessari spá sinni á einkafundi sem var skipulagður af fjárfestingafélaginu Village Global VC en auk Schmidt eru önnur fyrirmenni í félaginu og má þar nefna Bill Gates, Jeff Bezos og Diana Green. Village Global VC fjárfestir í sportafyrirtækjum í tæknigeiranum.
Schmidt sagðist ekki telja að internetið muni skiptast í marga hluta heldur væri líklegast að það fari í tvennt. Þessi skipting muni verða því kínversk tæknifyrirtæki verði mjög stór og það muni hafa í för með sér enn meiri ritskoðun og stjórn á netinu sem verður undir yfirráðum Kínverja.