Ferðamennirnir fóru í göngu á svæði nærri Rogensjön um klukkan 17 og skiluðu sér ekki aftur. Leit hófst á tíunda tímanum í gærkvöldi. Slæmt fjarskiptasamband er á svæðinu en ekkert samband hefur náðst við ferðamennina. Þeir eru sagðir vanir fjallaferðum og vel búnir.
Hvasst er á svæðinu og snjókoma.