fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Pressan

Evrópa undirbýr sig undir það versta – „Við horfum inn í byssuhlaup“

Kristján Kristjánsson
Miðvikudaginn 16. janúar 2019 05:59

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Evrópskir stjórnmálamenn og atvinnulífið í álfunni eru upp til hópa vonsviknir með niðurstöðuna í atkvæðagreiðslu breska þingsins í gær um útgöngusamning Breta við Evrópusambandið. Nú eru aðeins 10 vikur þar til Bretar ganga úr sambandinu en það mun samkvæmt áætlun gerast á miðnætti þann 29. mars. Theresa May, forsætisráðherra, beið algjört afhroð í atkvæðagreiðslunni í gær því samningi hennar við ESB var hafnað með 432 atkvæðum gegn 202. Stóra spurningin sem margir velta nú fyrir sér er því: Hvað gerist nú?

Margir höfðu vonast til að samningurinn yrði samþykktur þannig að staða málsins lægi ljós fyrir en svo fór ekki og því er ekki annað að sjá en allir möguleikar séu aftur opnir upp á gátt. Vantraust hefur verið lagt fram á ríkisstjórn May. Ný þjóðaratkvæðagreiðsla um Brexit eða frestun á útgöngu Breta á meðan reynt verður að ná samningum við ESB. Einnig er ekki útilokað að boðað verði til þingkosninga í Bretlandi. Allt þetta, þessi mikla óvissa, fer illa í atvinnulífið sem veit ekki hvers er að vænta. Þá er staða ríkisborgara annarra ESB-ríkja í Bretlandi í lausu lofti því enginn veit hvaða reglur munu gilda um þá eftir útgönguna ef samningar nást ekki og Bretar yfirgefa ESB án samnings, svokölluð hörð útganga. Það sem Theresa May sagði að atkvæðagreiðslunni lokinni á kannski ágætlega við um stöðuna:

„Það er ljóst að þingið styður þennan samning ekki. En atkvæðagreiðsla kvöldsins segir okkur ekkert um hvað þingmennirnir styðja. Ekkert um hvernig – eða hvort þeir hafa í hyggju að virða úrslit þjóðaratkvæðagreiðslunnar sem þingið studdi.“

Sagði hún og bætti við:

„Almenningur, sérstaklega ríkisborgarar ESB, sem búa hér, og breskir ríkisborgarar sem búa í ESB eiga skilið að fá skýr svör við þessu sem allra fyrst. Þeir sem vinna störf sem eru háð viðskiptum við ESB eiga heimtingu á skýrum svörum.“

Evrópskir stjórnmálamenn og evrópskt atvinnulíf undirbúa sig nú undir verstu hugsanlegu niðurstöður við útgönguna, Brexit án samnings. Margir telja að útgangan muni þá valda algjöru öngþveiti, þá sérstaklega í Bretlandi.

Breska hugveitan Institute of Directors sagði niðurstöðu atkvæðagreiðslunnar vera falleinkunn fyrir breska stjórnmálamenn.

„Með aðeins nokkrar vikur til stefnu horfum við inn í byssuhlaup en þingmenn hegða sér eins og þeir hafi nægan tíma til stefnu.“

Segir í yfirlýsingu frá hugveitunni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

„Hefurðu séð lík?“ – 14 ára stúlka myrti móður sína og bauð vinkonu heim til að sjá líkið

„Hefurðu séð lík?“ – 14 ára stúlka myrti móður sína og bauð vinkonu heim til að sjá líkið
Pressan
Í gær

Elon Musk sakar Ástrali um ritskoðun: „Hrokafullur milljarðamæringur,“ segir ráðherra

Elon Musk sakar Ástrali um ritskoðun: „Hrokafullur milljarðamæringur,“ segir ráðherra
Pressan
Fyrir 2 dögum

„Ósigrandi“ stúlknalið fór ósigrað í gegnum tímabilið í „strákadeildinni“

„Ósigrandi“ stúlknalið fór ósigrað í gegnum tímabilið í „strákadeildinni“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Airbnb-húsið frá helvíti – Móðir og fjögur börn í stórhættu

Airbnb-húsið frá helvíti – Móðir og fjögur börn í stórhættu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Gerði óhugnanlega uppgötvun heima hjá sér – Síðan hefur ráðgátan bara undið upp á sig

Gerði óhugnanlega uppgötvun heima hjá sér – Síðan hefur ráðgátan bara undið upp á sig
FréttirPressan
Fyrir 3 dögum

Dularfulla skáldsagan sem spáði fyrir um Titanic-slysið – Var höfundurinn geðveikur eða skyggn?

Dularfulla skáldsagan sem spáði fyrir um Titanic-slysið – Var höfundurinn geðveikur eða skyggn?