fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
Pressan

Móðir upplifði martröð: Litla stúlkan datt úr bílnum í beygjunni – Sjáðu myndbandið

Ritstjórn Pressunnar
Fimmtudaginn 17. janúar 2019 19:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Óhætt er að segja að Chad Mock, sendibílstjóra í Mankato í Minnesota í Bandaríkjunum, hafi brugðið þegar hann sá eitthvað liggja á götunni fyrir framan bifreið hans. Þegar betur var að gáð var um að ræða unga stúlku í bílstól.

Atvikið átti sér stað á mánudag og var Chad á ferð um fjölfarna götu í Mankato. Hann er með öryggismyndavél í bíl sínum og á upptökum úr henni má sjá þegar litla stúlkan dettur úr bifreiðinni í beygju. Þótt ótrúlegt megi virðast tók bílstjórinn, móðir stúlkunnar, ekki eftir þessu og hélt ferð sinni áfram.

Chad stöðvaði bifreið sína og hlúði að stúlkunni sem virtist ekki kippa sér mikið upp við atvikið. „Hún var mjög róleg, öskraði ekki og virtist ekki hafa meitt sig,“ segir Chad við Inside Edition. Hann segir að móðir stúlkunnar hafi komið aftur á staðinn um stundarfjórðungi síðar og verið í miklu uppnámi.

Stúlkan var færð undir læknishendur en sem betur fer slasaðist hún ekkert. Lögregla segir að stúlkan hafi verið rétt fest í bílstólnum en bílstóllinn sjálfur hafi ekki verið festur rétt við sætið. Móðir stúlkunnar á yfir höfði sér sekt vegna málsins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Hluti af San Andreas misgenginu gæti verið að setja sig í stellingar fyrir jarðskjálfta

Hluti af San Andreas misgenginu gæti verið að setja sig í stellingar fyrir jarðskjálfta
Pressan
Fyrir 2 dögum

47 ár frá upphafi tveggja tímamótageimferða

47 ár frá upphafi tveggja tímamótageimferða
Pressan
Fyrir 2 dögum

Áður óþekktar lífverur fundust við neðansjávarfjall við Páskaeyju – Myndband

Áður óþekktar lífverur fundust við neðansjávarfjall við Páskaeyju – Myndband
Pressan
Fyrir 3 dögum

Ferðin til Mallorca endaði með nokkurra daga hryllingi og björgunaraðgerð á flugvelli í Afríku

Ferðin til Mallorca endaði með nokkurra daga hryllingi og björgunaraðgerð á flugvelli í Afríku
Pressan
Fyrir 3 dögum

Loftsteinn á stærð við bíl þau rétt framhjá jörðinni – Uppgötvaðist bara tveimur dögum áður

Loftsteinn á stærð við bíl þau rétt framhjá jörðinni – Uppgötvaðist bara tveimur dögum áður
Pressan
Fyrir 3 dögum

Berst við 4. stigs krabbamein – Yfirmaðurinn pressar á hana að koma aftur til vinnu

Berst við 4. stigs krabbamein – Yfirmaðurinn pressar á hana að koma aftur til vinnu