fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Pressan

Maduro-kúrinn – 11 kíló farin á einu ári

Kristján Kristjánsson
Fimmtudaginn 7. febrúar 2019 06:59

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þegar Hugo Chávez komst til valda í Venesúela lofaði hann byltingu í þágu hinna fátæku. En byltingin virðist hafa farið úrskeiðis því staða mála í Venesúela er hörmuleg í dag. Rúmlega þrjár milljónir landsmanna hafa flúið land vegna ástandsins þar en mikill skortur er á helstu nauðsynjum. Talið er að um 300.000 landsmenn svelti heilu hungri og séu í mikilli hættu vegna þess. Nýjasta þróun mála er sú að her landsins hefur lokað brú, sem tengir Venesúela og Kólumbíu saman, til að koma í veg fyrir að neyðaraðstoð berist hrjáðum landsmönnum. Ástæðan er sú að stjórnvöld segja að Venesúela sé ekki þjóð betlara.

Sú efnahagsstefna sem Hugo Chavéz og síðan eftirmaður hans, Nicolás Maduro, hafa rekið hefur ýtt landinu fram af bjargbrúninni efnahagslega. Eymdin sem ríkir í landinu hefur meira að segja fengið sérstakt nafn en landsmenn kalla hana: Maduro-kúrinn.

Skortur á nauðsynjum

Nær algjör skortur er á helstu nauðsynjum í landinu nema hvað þeir sem tilheyra hinni pólitísku elítu og þeir sem eiga Bandaríkjadollara geta orðið sér úti um mat. Hann er alltof dýr til að venjulegt fólk geti keypt hann. Af þeim sökum hafa milljónir landsmanna flúið land og stærsti hluti þjóðarinnar fer hungraður í rúmið. Þetta hörmulega ástand hefur ýtt undir mótmæli gegn stjórn Maduro en forsetinn hefur hvergi hvikað frá stefnu sinni og varpar sökinni á ástandinu í landinu á fjandvin landsins númer eitt, Bandaríkin.

Þegar Maduro bauð sig fram til forseta á síðasta ári fór blaðamaður New York Times til Caracas, höfuðborgar Venesúela, og annara staða í landinu til að kanna ástandið. Það sem hann upplifði var að fólk fékk ekki nóg að borða, sjúkrahús áttu nær engin lyf eða einfaldan útbúnað á borð við plástur. Niðurstöður nýrrar rannsóknar vísindamanna við þrjá háskóla sýna að hver Venesúelamaður hefur lést um 11 kíló á einu ári. 6.000 manns tóku þátt í rannsókninni að sögn Reuters.

Venesúela
Mikil ókyrrð í stjórnmálum og efnahagsmálum undanfarin ár.

Ríkisstjórnin hefur reynt að ná tökum á ástandinu með því að hækka lágmarkslaunin, það var gert sex sinnum á síðasta ári, og með því að setja þak á verð á nauðsynjavörum. En þetta hefur ekki orðið til þess að laga ástandið, þvert á móti. Upp hefur sprottið blómlegur svartur markaður þar sem er hægt að kaupa allt frá eggjum til salernispappírs og verkjalyfja. Það þarf auðvitað ekki að nefna að þessi verslunarstarfsemi fer ekki fram í hefðbundnum verslunum.

Þær vörur sem ríkisstjórnin flytur inn og selur ódýrt hafa oft reynst vera lélegar að gæðum. Rannsókn á mjólk, sem ríkisstjórnin seldi ódýrt, leiddi í ljós að hún var að megninu til vatn.

Vilja losna við Maduro

Landsmenn eru orðnir þreyttir á ástandinu og krefjast nú afsagnar Maduro í stórum hópum. Það er mikil breyting frá því sem var fyrir aðeins einu ári því þá krafðist fólk betri aðstæðna en nú hafa mótmælin snúist gegn Maduro sem rígheldur enn í völdin og mun væntanlega gera meðan her landsins stendur að baki honum. Það er því ekki að sjá að Juan Guaidó, leiðtogi stjórnarandstöðunnar og forseti þjóðþingsins, taki við völdum á næstunni þrátt fyrir að mörg lýðræðisríki hafi lýst yfir stuðningi við hann. Á móti kemur að einræðisríki og ríki þar sem lýðræði þykir ekki upp á marga fiska styðja Maduro, má þar nefna Kúbu, Kína og Rússland til sögunnar.

„Megrunarkúrinn“ er kenndur við Nicolás Maduro forseta Venesúeala.

Verðbólgan í landinu er milljón prósent og ekkert útlit fyrir að fari að draga úr henni. Þetta er ótrúleg breyting á stöðu mála í landinu frá því sem var fyrir nokkrum árum en Venesúela á mestu olíubirgðir heims í jörðu en þegar olíuverð lækkaði fyrir nokkrum árum fór að halla undan fæti og stjórnvöldum tókst ekki að halda efnahagslífinu gangandi. Þá er mikið af gulli og öðrum málmum í jörðu í landinu, loftslagið hentar vel fyrir ferðamannaiðnað og landbúnað og áður var landið það ríkasta í Suður-Ameríku. Ekki bætir það stöðu mála að spilling er landlæg og hafa valdhafa og þeir sem eru þeim þóknanlegir makað krókinn á undanförnum árum á meðan almenningur sveltur. Landið líkist frekar landi þar sem stríð hefur geisað en landi þar sem velmegun var almenn þar til fyrir nokkrum árum.

Mótmæli eru tíð í þessu hrjáða landi. Mynd:Wikimedia Commons

Það var forveri Maduro, Hugo Chávez, sem lagði grunninn að þeim hörmungum sem ríkja í landinu. Þegar hann komst til valda 1998 var gríðarlegur munur á stöðu ríkra og fátækra í landinu. Hann lofaði hinum fátæku sósíalískri byltingu. Hann byggði efnahagsstefnu sína á því að olíuverð myndi haldast hátt en þegar verðið lækkaði hrundi þetta módel hans til grunna. Við því var brugðist með því að taka lán og prenta peningaseðla, það leiddi af sér verðbólgu og gerði gjaldmiðil landsins verðlausan. Til að geta greitt af lánum skar ríkisstjórnin niður innflutning til landsins sem orskaði mikinn skort á nær öllu því sem ekki er framleitt í Venesúela. Auk þess var búið að ríkisvæða stóran hluta efnahagslífsins og bætti það ekki úr skák að margra mati.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Móðir ákærð – Hótaði barnsföður sínum að birta klámfengið efni

Móðir ákærð – Hótaði barnsföður sínum að birta klámfengið efni
Pressan
Fyrir 2 dögum

Norður-Kórea er betur undirbúin undir stríð en nokkru sinni áður

Norður-Kórea er betur undirbúin undir stríð en nokkru sinni áður
Pressan
Fyrir 3 dögum

Fundu bát sem var fullur af rotnandi líkum

Fundu bát sem var fullur af rotnandi líkum
Pressan
Fyrir 3 dögum

Kannabis er orðið að milljarðaiðnaði í Bandaríkjunum – Hvaða áhrif hefur efnið á heilsu fólks?

Kannabis er orðið að milljarðaiðnaði í Bandaríkjunum – Hvaða áhrif hefur efnið á heilsu fólks?
Pressan
Fyrir 3 dögum

Kynlífspartý, fíkniefni, Viagra og morð – Kaþólska kirkjan tengist vafasömum málum

Kynlífspartý, fíkniefni, Viagra og morð – Kaþólska kirkjan tengist vafasömum málum
Pressan
Fyrir 3 dögum

Lögreglukonan sem réðst ein til atlögu gegn stungumanninum í Sydney – „Ég var bara að vinna mína vinnu“ – Nýjar upplýsingar um morðingjann vekja óhug

Lögreglukonan sem réðst ein til atlögu gegn stungumanninum í Sydney – „Ég var bara að vinna mína vinnu“ – Nýjar upplýsingar um morðingjann vekja óhug