fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Pressan

Tveggja ára stúlka fannst látin fyrir utan dyrnar heima hjá sér

Ari Brynjólfsson
Þriðjudaginn 15. janúar 2019 21:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tveggja ára stúlka fannst látin fyrir utan heimili sitt í New Hampshire í Bandaríkjunum á mánudagsmorgun. Talið er að Sofia Van Schloik hafi vaknað um nóttina og farið út en ekki komist inn aftur. Hitastigið var -8 gráður.

Heimili Sofiu. Hún fannst við tröppurnar.

Afi stúlkunnar, Lindsay Van Schloik, sagði í samtali við fjölmiðla Vestanhafs að fjölskyldan sé eyðilögð. Sofia var nýflutt í húsið ásamt foreldrum sínum og var enn að læra á umhverfi sitt. Það hafi verið auðvelt að opna út.

„Við teljum ekki að hún hafi reynt að komast inn. Hún fannst neðst í útidyratröppunum. Við munum aldrei vita nákvæmlega hvað gerðist,“ sagði Van Schloik.

Fjölmiðlar segja að nágrannar hafi heyrt barnsgrátur kl. 4 um nóttina. Kl. 7 barst lögreglu tilkynning. Þegar lögregla kom á vettvang skömmu síðar var Sofia úrskurðuð látin.

„Hún var mjög gáfuð, skemmtileg og þrjósk,“ segir afi hennar. „Hún var yndisleg.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Þóttist vera dáinn til að sleppa við að greiða meðlag

Þóttist vera dáinn til að sleppa við að greiða meðlag
Pressan
Í gær

Roger þótti ekki duga sem fíkniefnaleitarhundur – Sannaði sig sem rústaleitarhundur

Roger þótti ekki duga sem fíkniefnaleitarhundur – Sannaði sig sem rústaleitarhundur
Pressan
Fyrir 2 dögum

Kvikmyndafyrirtæki með 21 Óskarsverðlaun á ferilskránni leggur upp laupana

Kvikmyndafyrirtæki með 21 Óskarsverðlaun á ferilskránni leggur upp laupana
Pressan
Fyrir 2 dögum

Móðir ákærð – Hótaði barnsföður sínum að birta klámfengið efni

Móðir ákærð – Hótaði barnsföður sínum að birta klámfengið efni