Mannréttindarsamtök í Rússlandi og um allan heim hafa fordæmt aðgerðir yfirvalda í Tsétséníu gegn samkynhneigðum þar í landi. Segja samtökin að um 40 samkynhneigðir einstaklingar hafa verið handteknir á undanförnum vikum og hafa tveir látist vegna pyntinga í fangelsi.
Frá árinu 2017 hafa yfirvöld í Tsétséníu sett af stað skipulagða herferð gegn samkynhneigðum að sögn mannréttindarsamtaka. Ramzan Kadyrov, forseti Tsétséníu, neitar öllum ásökunum. Hann hefur sagt að það séu engir samkynhneigðir einstaklingar í landinu, en séu þeir til eigi þeir að yfirgefa landið strax.
Síðan 2017 hafa ýmis mannréttindarsamtök aðstoðað yfir 150 samkynhneigða einstaklinga að flýja landið, þó ekki til Rússlands heldur aðallega til vesturlanda.