Tuttugu og eins árs Serbi, Armin Alibasic, hefur verið handtekinn en hann er sagður hafa ætlað að freista þess að ráða Vladimir Pútín Rússlandsforseta af dögum. Pútín er væntanlegur til Belgrad, höfuðborgar Serbíu, á morgun.
Maðurinn sem um ræðir er sagður dyggur stuðningsmaður ISIS. Lögregla lagði hald á talsvert magn vopna og sprengiefna á heimili hans í borginni Novi Pazar. Öryggislögreglan í Serbíu, BIA, grunar að Armin hafi ætlað að láta til skarar skríða meðan á heimsókn Pútín stendur.
Heimildarmaður innan BIA segir við fjölmiðla að Pútín hafi verið skotmarkið vegna aðgerða Rússa gegn liðsmönnum ISIS í Sýrlandi.
Lögreglu grunar að maðurinn hafi átt sér vitorðsmenn.