fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Pressan

Hún náði augnsambandi við konuna í versluninni – Konan hvíslaði tvö orð sem fylltu hana skelfingu

Kristján Kristjánsson
Föstudaginn 18. janúar 2019 06:50

Verslunin sem Kathy var í.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Farsímar fylla sífellt meira í daglegu lífi fólks og því miður ganga margir um og eru svo niðursokknir í símana sína að þeir taka ekki eftir nánasta umhverfi sínu eða því sem þar gerist. En sem betur fer eru enn nokkrir sem ekki eru niðursokknir í síma sína öllum stundum og taka eftir því sem gerist í kringum þá. Það kom sér vel í þessu máli og skipti svo sannarlega sköpum.

Þegar kona að nafni Kathy var að versla í íþróttavöruverslun í Salem í Oregon í Bandaríkjunum átti hún ekki von á að verslunarferðin yrði öðruvísi en aðrar. Skyndilega sá hún konu sem virtist vera að versla með manni sínum og barni. Eitthvað dró athygli Kathy að konunni og barninu og fljótlega áttaði hún sig á að þau virtust vera óttaslegin, augu þeirra voru á sífelldri hreyfingu þar sem þau voru stöðugt að skanna umhverfið, eiginlega var eins og þau væru að leita að einhverju.

Um síðir náði Kathy augnsambandi við konuna sem hvíslaði þá tvö orð sem fylltu Kathy skelfingu:

„Hjálpaðu mér.“

Konan hélt síðan áfram að láta líta út fyrir að hún væri að versla. Kathy áttaði sig á að konan væri í hættu og hringdi því strax í lögregluna sem kom fljótt á vettvang. Þá kom í ljós að ekki var allt með felldu.

Í ljós kom að maðurinn, hinn 25 ára Christopher Hahn-Collins, hafði brotist inn til konunnar daginn áður og rænt henni og syni hennar. Þrátt fyrir þá miklu skelfingu sem heltók konuna áttaði hún sig á að hún væri tilneydd til að gera allt sem í hennar valdi stæði til að lifa þetta af. Hún náði að vinna sér inn traust Hahn-Collins og á endanum náði hún að sannfæra hann um að fara með hana og drenginn í íþróttavöruverslunina.

Þessi áætlun hennar gekk fullkomlega upp og má þakka hugrekki hennar og útsjónarsemi og auðvitað árvekni Kathy að mæðginin losnuðu úr haldi Hahn-Collins.

Hahn-Collins var dæmdur í fangelsi fyrir innbrot og mannrán.

Chris Baldrige.

Chris Baldrige, lögreglumaður, sagði í samtali við KOIN 6 að Kathy hafi brugðist hárrétt við.

„Við viljum ekki að fólk fari frá svona aðstæðum og hugsi: „Þessi manneskja þarfnaðist kannski hjálpar, hefði ég átt að hringja?““

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

„Hefurðu séð lík?“ – 14 ára stúlka myrti móður sína og bauð vinkonu heim til að sjá líkið

„Hefurðu séð lík?“ – 14 ára stúlka myrti móður sína og bauð vinkonu heim til að sjá líkið
Pressan
Fyrir 2 dögum

Elon Musk sakar Ástrali um ritskoðun: „Hrokafullur milljarðamæringur,“ segir ráðherra

Elon Musk sakar Ástrali um ritskoðun: „Hrokafullur milljarðamæringur,“ segir ráðherra
Pressan
Fyrir 2 dögum

„Ósigrandi“ stúlknalið fór ósigrað í gegnum tímabilið í „strákadeildinni“

„Ósigrandi“ stúlknalið fór ósigrað í gegnum tímabilið í „strákadeildinni“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Airbnb-húsið frá helvíti – Móðir og fjögur börn í stórhættu

Airbnb-húsið frá helvíti – Móðir og fjögur börn í stórhættu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Gerði óhugnanlega uppgötvun heima hjá sér – Síðan hefur ráðgátan bara undið upp á sig

Gerði óhugnanlega uppgötvun heima hjá sér – Síðan hefur ráðgátan bara undið upp á sig
FréttirPressan
Fyrir 3 dögum

Dularfulla skáldsagan sem spáði fyrir um Titanic-slysið – Var höfundurinn geðveikur eða skyggn?

Dularfulla skáldsagan sem spáði fyrir um Titanic-slysið – Var höfundurinn geðveikur eða skyggn?