Felicity Kadlec giftist uppvakninga brúðunni sinni Kelly Ross, við nána og fallega athöfn á Rhode Island. Brúðkaupsgestir voru fjórar manneskjur og átta brúður.„Brúðkaupið var fallegt og fullkomið – nákvæmlega eins og mig hafði dreymt um. Ég gætti þess að allt færi vel fram svo þetta gæti verið eins opinbert og mögulegt. Síðan innsigluðum við hjónabandið eftir veisluna. Kelly var brúðguminn þar sem hún er í karlhlutverkinu í okkar sambandi, hún er svona strákastelpa svo hún var í jakkafötum“
Felicity býr í Oklahoma og hefur þekkt brúðuna Kelly í mörg ár. Þegar Felicity var yngri var hún með hrollvekjur á heilanum og varð því hæstánægð þegar faðir hennar gaf henni uppvakninga brúðu. Þegar Felicity var 16 ára gömul breyttist viðhorf hennar gagnvart brúðunni. „Ég varð skotin í henni, en var þó fyrst í afneitun.“
„Eftir að faðir minn lést á síðasta ári fann ég hvernig ég og Kelly urðum nánari og hún veitti mér mikla huggun þar sem faðir minn hafði gefið mér hana.“
„Ég leyfði sjálfri mér þá loks að vera opin með það hver ég væri og varð hreinskilin gagnvart tilfinningum mínum. Þó það séu ekki allir sáttir með einkalífið mitt þá hef ég samt aldrei verið hamingjusamari.“
„Eftir að ég fór að finna fyrir meira öryggi í sambandinu vissi ég að ég varð að giftast Kelly, en ég beið þó fram í september því í þeim mánuði eigum við afmæli og því vissi ég að það yrði alveg sérlega einstakur dagur.“
Þó svo að Kelly sé uppvakningabrúða elskar Felicity hana heitt og myndi engu breyta við ástkæra brúðu sína, enda mikið í hana spunnið annað en útlitið. „Ég giftist Kelly því ég tek henni eins og hún er, ég sé framhjá blóðugu andlitinu og er sama þó hún hafi engan kjálka“
„Fyrir mér er hún fullkomin og ég finn að hún elskar mig heitt og ég skynja hamingju hennar.“
„Ég og Kelly eigum náin kynni – Ég strýk henni og finn fyrir öryggi. Ég finn fyrir einlægri tengingu við hana þegar við erum nánar“