fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Pressan

16 ára morðingi Aleshu litlu verður mögulega nafngreindur

Erla Dóra Magnúsdóttir
Föstudaginn 22. febrúar 2019 11:48

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

16 ára drengurinn sem banaði sex ára Aleshu MacPhail gæti verið nafngreindur í dag. Dómarinn í málinu sagði að drengurinn hafi gerst sekur um þau skelfilegustu og illskulegustu brot sem hann hefði nokkurn tímann heyrt um. Drengurinn hefur ekki verið nafngreindur til þessa, því hann er aðeins 16 ára gamall, en dómarinn hefur nú tekið til íhugunar beiðni frá fjölmiðlun um undanþágu.

Drengurinn nam Aleshu á brott úr rúmi hennar, þar sem hún svaf, og banaði henni svo.

„Við trúum því ekki að við fáum aldrei að sjá litla engilinn okkar Aleshu aftur. Við söknum hennar svo sárt. Við vonumst til þess að drengurinn sem tók hana frá okkur verði dæmdur til langrar fangelsisvistar fyrir glæp sinn gegn fjölskyldu okkar. Alesha er horfin úr lífi okkar en ekki úr hjörtum okkar,“ sagði í yfirlýsingu frá fjölskyldu Aleshu og móðir AleshuGeorgina, sagði:

„Engin orð fá lýst hversu niðurbrotin ég er yfir að hafa misst fallegu, hamingjusömu og brosmildu stelpuna mína“

„Ég er ánægð með að réttlætinu hafi verið framfylgt gagnvart drengnum sem gerði þetta og að hann muni aldrei fá tækifæri tli að valda annarri fjölskyldu sama sársauka og hann hefur valdið minni. Alesha, ég elska þig svo mikið, litla vinkonan mín. Ég mun sakna þín að eilífu.

Samkvæmt sérfræðingi sem gaf skýrslu fyrir dómi þá hlaut Alesha litla 117 áverka og lést vegna þess að þrengt var að öndunarvegi hennar. Hann sagði að áverkar á kynfærum hennar hefðu verið svakalegir, svo svakalegir að hann hefði aldrei séð annað eins og hlaut stúlkan hluta þeirra áverka, meðan hún var enn lifandi. Drengurinn neitaði sök í málinu og hélt því fram að hann hefði aldrei hitt Aleshu hvað þá rænt,  nauðgað og myrt hana. Við rannsókn á líki og fötum Aleshu fannst töluvert af erfðaefni hins ákærða.

Frétt Metro

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Unglingur dæmdur í ævilangt fangelsi – Stakk ellilífeyrisþega í hjartað

Unglingur dæmdur í ævilangt fangelsi – Stakk ellilífeyrisþega í hjartað
Pressan
Fyrir 2 dögum

Konur lýstu hegðun hans á Facebook – Nú krefst hann bóta

Konur lýstu hegðun hans á Facebook – Nú krefst hann bóta
Pressan
Fyrir 3 dögum

Stillti sér upp á mynd fyrir eiginmanninn – Andartökum síðar var hún látin

Stillti sér upp á mynd fyrir eiginmanninn – Andartökum síðar var hún látin
Pressan
Fyrir 3 dögum

9 ára stúlka lést eftir astmakast – Foreldrarnir létu renna í bað í stað þess að hringja á neyðarlínuna

9 ára stúlka lést eftir astmakast – Foreldrarnir létu renna í bað í stað þess að hringja á neyðarlínuna
Pressan
Fyrir 4 dögum

Tíu ára drengur játar á sig morð: Var sjö ára þegar hann framdi voðaverkið

Tíu ára drengur játar á sig morð: Var sjö ára þegar hann framdi voðaverkið
Pressan
Fyrir 4 dögum

Blaðamaðurinn Terry Anderson látinn – Gekk í gegnum margra ára martröð

Blaðamaðurinn Terry Anderson látinn – Gekk í gegnum margra ára martröð
Pressan
Fyrir 4 dögum

Hluti af San Andreas misgenginu gæti verið að setja sig í stellingar fyrir jarðskjálfta

Hluti af San Andreas misgenginu gæti verið að setja sig í stellingar fyrir jarðskjálfta
Pressan
Fyrir 4 dögum

47 ár frá upphafi tveggja tímamótageimferða

47 ár frá upphafi tveggja tímamótageimferða