Skjaldbakan er kvendýr og fannst þann 19. febrúar í vísindaleiðangri til eyjunnar. Marcelo Mata, umhverfisráðherra Ekvador, skýrði frá þessu á Twitter og birti myndir af skjaldbökunni.
Þessi skjaldbökutegund er þekkt fyrir mjúkan skjöld sinn og bleikt trýni. Dýrið var flutt á verndað svæði á annarri Galapagoseyju.