Mörgum reynist það erfitt að vippa úr háu grasi við flöt en það er lítið mál ef þið farið að hlutunum rétt.
1. Notið sandjárnið
2. Opnið kylfublaðið
3. Sláið niður á boltann, þannig að það verði sem minnst gras á milli kylfu og boltans
4. Reiknið með að boltinn rúlli töluvert eftir niðurkomu, því að það er erfitt að ná eðlilegum spuna úr aðstæðum sem þessum.
Hér að neðan sýnir Hank Haney fyrrum þjálfari Tiger Woods þetta á skýran hátt í kennslumyndbandi.