Margir af bestu kylfingum landsins eru skráðir til leiks á Egil-Gull mótinu á Eimskipsmótaröðinni sem fram fer dagana 18.-20. maí. Mótið fer fram á Garðavelli á Akranesi. Mótið er það þriðja í röðinni á keppnistímabilinu 2017-2018 á Eimskipsmótaröðinni. Keppendur sem skráðir eru til leiks eru tæplega 90.
Mótsstjórn Egils Gulls mótsins vill koma því á framfæri til keppenda að hún er mjög meðvituð um veðurspá sem gefin hefur verið út yfir mótsdaga. Mótsstjórn mun reglulega taka stöðuna á aðstæðum með tilliti til hag keppenda á meðan á móti stendur, hvort sem um ræðir uppstillingu vallar eða frestun leiks.
Alls eru 17 keppendur skráðir til leiks í kvennaflokki og ber þar hæst að atvinnukylfingarnir Valdís Þóra Jónsdóttir úr GL og Guðrún Brá Björgvinsdóttir úr Keili eru á meðal keppenda.
Valdís er á heimavelli á þessu móti en hún fagnaði Íslandsmeistaratitlinum árið 2017. Valdís leikur á sterkustu atvinnumótaröð Evrópu, LET Evrópumótaröðinni, og Guðrún Brá keppir á LET Access mótaröðinni sem er sú næst sterkasta í Evrópu.