Að fengnu áliti og ráðgjöf frá Veðurstofu Íslands var það mat mótstjórnar Egils Gull mótsins á Eimskipsmótaröðinni sem fór fram á Garðavelli að fella niður keppnisdaga tvö og þrjú.
Veðurspá fyrir laugardaginn 18.maí var ekki ákjósanleg til golfleiks og því síður veðurspá fyrir sunnudaginn. Það var því ákveðið að láta úrslit föstudagsins gilda.
Úrslit urðu því þannig:
Karlaflokkur:
1. Axel Bóasson, GK 68 högg (-4)
2. Aron Snær Júlíusson, GKG 70 högg (-2)
3.-4. Andri Már Óskarsson, GHR 71 högg (-1)
3.-4. Dagbjartur Sigurbrandsson, GR 71 (-1)
Kvennaflokkur:
1. -2. Arna Rún Kristjánsdóttir, GM 76 högg (+4)
1.-2. Guðrún B. Björgvinsdóttir, GK 76 högg(+4)
3. Valdís Þóra Jónsdóttir, GL 78 högg (+6)
Stigakeppni klúbba:
Karlaflokkur:
1. Golfklúbbur Mosfellsbæjar
2. Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar
3.-4. Golfklúbburinn Keilir
3.-4. Golfklúbbur Akureyrar
Kvennaflokkur:
1. Golfklúbburinn Keilir
2. Golfklúbbur Mosfellsbæjar
3. Golfklúbbur Reykjavíkur